Var að ljúka við hana þessa
og líkaði vel þegar ég komst á skrið en þessa dagana gefst lítill tími í lestur. Í bókini er fjallað um nokkra vini í Birmingham í kringum 1970. Þetta er þroskasaga nokkurra unglinga í menntaskóla. Höfundur leyfir okkur að kynnast nokkuð mörgum persónum, mis náið, þannig að þú færð nokkur sjónarhorn á samaatburðinn. Þetta er önnur bókin sem ég les eftir Jonathan Coe og ég held barasta að hann fari að verða einn af mínum uppáhaldshöfundum. Nú verð ég barasta að drífa mig í að panta framhaldið The Closed Circle frá Amazon. Ekki leiðinlegt það.
No comments:
Post a Comment