.......er búin að langa að gera svona skál 4ever
Rólegheit í Reykjavík
Mjög alvarlegt blogg um bækur, hekl, mat, uppeldi og hluti sem höfundur tekur mjög alvarlega. Hér hefur kaldhæðni verið úthýst og ekki er í boði að reyna að vera fyndin.
Sunday, November 28, 2010
Jólakrans
Það er fyrsti í aðventu og ég er með smá móral yfir því að vera ekki með aðventukrans, seríur og jólafínerí. Er þó búin að baka eina sort, svo ég er ekki algjör trölli.
Mig langar alveg óskaplega mikið til þess að prófa að gera einn svona fínan krans fyrir jólin. Þarf að melta með mér hvaða litir gætu hentað.......væri kannsi hægt að útfæra þetta í snjókornaþema. Litasprengja eða svart og hvítt????????
Svo margt sem mig langar að gera en ég kem þó engu í verk.

Sunday, November 7, 2010
Saturday, November 6, 2010
Thursday, November 4, 2010
Markmið
Það sem ég vildi hafa sagt en kom ekki frá mér var að ég stefni á að fara aftur 10K á næsta ári og þá að taka þetta á 60 mín eða undir. Það þýðir að ég þarf að hlaupa á 6 mín pace-i ( mín sem tekur að fara 1 km). Get með stolti sagt að í dag fór ég....tadadadara.....heila 400 metra á þessum hraða áður en ég sprakk.
Mikið er nú samt gaman að vera svona lélegur hlaupari því það þýðir bara að verkefnið er stærra og sigurinn þeim mun sætari ........
........helv fokking fokk hver komst í bloggið mitt

Spark í rassinn
Ég var svakalega dugleg að hreyfa mig í sumar og hljóp 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu í haust en eftir það fór þetta að dala hjá mér.
Í dag fór ég hins vegar og gekk til liðs við fína og fræga fólkið í Laugum. Fórnaði bæði Bónus og Vínbúðinni fyrir ræktina því það er ekki sjens að maður nenni að mæta eftir að hafa sótt krakkagrislinginn, dröslað honum í Bónus, heim, ganga frá, elda mat og svo púff dagurinn er búinn, takk fyrir mig og bæ.
Í dag sleppti ég búðarferðinni og eldamennskunni og dreif mig af stað.
Á leiðinni heim fór ég að hugsa:
Líkamsrækt er fyrir svona fólk sem á ekki börn (eða er hætt að þurfa að hugsa um börnin),
Fólk sem verslar ekki í Bónus (Það er alltaf opið í Hagkaup eða Nóatúni ef þú hefur efni á að versla þar að staðaldri)
Fólk sem eldar aldrei kvöldmat því það kaupir sér bara eitthvað gott og girnilegt á veitingastaðnum í ræktinni eða lifir á próteindrykkjum.
Fólk sem þarf ekki að vinna, hefur ekki vinnu eða ræður öllu í vinnunni svo það fer bara í ræktina þegar því sýnist
og að lokum ofurmenni sem mæta kl 06:00

Monday, November 1, 2010
Hádegismatur
250 ml Ab mjólk - létt að sjálfsögðu
2 ferskar döðlur - því við viljum hafa það sætt
Frosin jarðaber - nokkur stykki
Frosin hindber - nokkur stykki + þessi sem duttu í gólfið
Banani
Matskeið hveitikím og dass af Goji berjum - því þetta tvennt á að vera allra meina bót. Svo hollt og grennandi að það er bókstaflega nóg að eiga þetta í skápunum og þú grennist um 10 kg. yfir nótt sem er akkúrat það sem ég þarf.
Mixið og drekkið. Látið ykkur líða vel. Samviskan hrein yfir hollu og heilsusamlegu líferni.
Gefum þessum hálftíma áður en við rífum allt út úr eldhússkápunum í leit að súkkulaðikexinum sem ég er viss um að ég keypti fyrir helgi....en veit innst inni að ég át allt í gær.
Fer og kaupi mér kort í ræktina eftir vinnu.

Subscribe to:
Posts (Atom)