Thursday, November 4, 2010

Spark í rassinn

Ég var svakalega dugleg að hreyfa mig í sumar og hljóp 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu í haust en eftir það fór þetta að dala hjá mér.

Í dag fór ég hins vegar og gekk til liðs við fína og fræga fólkið í Laugum.  Fórnaði bæði Bónus og Vínbúðinni fyrir ræktina því það er ekki sjens að maður nenni að mæta eftir að hafa sótt krakkagrislinginn, dröslað honum í Bónus, heim, ganga frá, elda mat og svo púff dagurinn er búinn, takk fyrir mig og bæ.
Í dag sleppti ég búðarferðinni og eldamennskunni og dreif mig af stað. 
Á leiðinni heim fór ég að hugsa: 
Líkamsrækt er fyrir svona fólk sem á ekki börn (eða er hætt að þurfa að hugsa um börnin),
Fólk sem verslar ekki í Bónus (Það er alltaf opið í Hagkaup eða Nóatúni ef þú hefur efni á að versla þar að staðaldri) 
Fólk sem eldar aldrei  kvöldmat því það kaupir sér bara eitthvað gott og girnilegt á veitingastaðnum í ræktinni eða lifir á próteindrykkjum.
Fólk sem þarf ekki að vinna, hefur ekki vinnu eða ræður öllu í vinnunni svo það fer bara í ræktina þegar því sýnist
og að lokum ofurmenni sem mæta kl 06:00

No comments:

Post a Comment