Sunday, November 28, 2010

Skál fyrir því..

.......er búin að langa að gera svona skál 4ever

Jólakrans

Það er fyrsti í aðventu og ég er með smá móral yfir því að vera ekki með aðventukrans, seríur og jólafínerí.  Er þó búin að baka eina sort, svo ég er ekki algjör trölli.

Mig langar alveg óskaplega mikið til þess að prófa að gera einn svona fínan krans fyrir jólin.  Þarf að melta með mér hvaða litir gætu hentað.......væri kannsi hægt að útfæra þetta í snjókornaþema. Litasprengja eða svart og hvítt????????


Svo margt sem mig langar að gera en ég kem þó engu í verk.

Sunday, November 7, 2010

Ég elska að fá pakka

fékk einn frá Japan á föstudaginn


og



Lovely, lovely, lovely :-)

Thursday, November 4, 2010

Markmið

Það sem ég vildi hafa sagt en kom ekki frá mér var að ég stefni á að fara aftur 10K á næsta ári og þá að taka þetta á 60 mín eða undir.  Það þýðir að ég þarf að hlaupa á 6 mín pace-i ( mín sem tekur að fara 1 km).  Get með stolti sagt að í dag fór ég....tadadadara.....heila 400 metra á þessum hraða áður en ég sprakk.

Mikið er nú samt gaman að vera svona lélegur hlaupari því það þýðir bara að verkefnið er stærra og sigurinn þeim mun sætari ........


........helv fokking fokk hver komst í bloggið mitt

Spark í rassinn

Ég var svakalega dugleg að hreyfa mig í sumar og hljóp 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu í haust en eftir það fór þetta að dala hjá mér.

Í dag fór ég hins vegar og gekk til liðs við fína og fræga fólkið í Laugum.  Fórnaði bæði Bónus og Vínbúðinni fyrir ræktina því það er ekki sjens að maður nenni að mæta eftir að hafa sótt krakkagrislinginn, dröslað honum í Bónus, heim, ganga frá, elda mat og svo púff dagurinn er búinn, takk fyrir mig og bæ.
Í dag sleppti ég búðarferðinni og eldamennskunni og dreif mig af stað. 
Á leiðinni heim fór ég að hugsa: 
Líkamsrækt er fyrir svona fólk sem á ekki börn (eða er hætt að þurfa að hugsa um börnin),
Fólk sem verslar ekki í Bónus (Það er alltaf opið í Hagkaup eða Nóatúni ef þú hefur efni á að versla þar að staðaldri) 
Fólk sem eldar aldrei  kvöldmat því það kaupir sér bara eitthvað gott og girnilegt á veitingastaðnum í ræktinni eða lifir á próteindrykkjum.
Fólk sem þarf ekki að vinna, hefur ekki vinnu eða ræður öllu í vinnunni svo það fer bara í ræktina þegar því sýnist
og að lokum ofurmenni sem mæta kl 06:00

Monday, November 1, 2010

Hádegismatur

250 ml Ab mjólk - létt að sjálfsögðu
2 ferskar döðlur - því við viljum hafa það sætt
Frosin jarðaber - nokkur stykki
Frosin hindber -  nokkur stykki + þessi sem duttu í gólfið
Banani

Matskeið hveitikím og dass af Goji berjum - því þetta tvennt á að vera allra meina bót.  Svo hollt og grennandi að það er bókstaflega nóg að eiga þetta í skápunum og þú grennist um 10 kg. yfir nótt sem er akkúrat það sem ég þarf.

Mixið og drekkið.  Látið ykkur líða vel.  Samviskan hrein yfir hollu og heilsusamlegu líferni.

Gefum þessum hálftíma áður en við rífum allt út úr eldhússkápunum í leit að súkkulaðikexinum sem ég er viss um að ég keypti fyrir helgi....en veit innst inni að ég át allt í gær.

Fer og kaupi mér kort í ræktina eftir vinnu. 

Sunday, October 31, 2010

Fantastic Mr. Fox

Refurinn frábæri er í miklu uppáhaldi hjá okkur. 

Sonurinn (4 ára)  var að teikna í kvöld og sótti fyrirmyndirnar í þessa frábæru mynd.  Honum tókst bara nokkuð vel upp enda algjör snillingur hér á ferð.





Amigurumi

Amigurumi kallast heklaðar fígúrur.  Þetta æði kemur frá Japan Amigurumi þýðir víst bókstaflega sæt hekluð dýr.   Endalausir möguleikar, fljótlegt og skemmtilegt.  Hægt að fá fullt af uppskriftabókum á Amazon og ókeypis á netinu en í raun er þetta bara spurning um að kunn að hekla í hring :-)




The Secret History

Er að hlusta á þessa núna.

 

Hún er mjög spennandi en ég hef fengið betri hljóðbók.  Höfundurinn hefur ákveðið að lesa þetta sjálf og hún er ekki alveg að höndla það blessunin.   Annars eru hljóðbækur algjör snilld. Hjálpa manni að sofna á kvöldin.  Gott að lesa smá í bók, slökkva svo ljósið og leggjast á koddan með hljóðbók í eyrunum.  Svo er fínt að taka þær með sér í göngutúr og enn einn kosturinn er að þú hefur hendurnar lausar svo þú getur heklað, bakað, prjónað (þeir sem geta það á annað borð) o.s.frv. með upplestur í eyrunum.

The Rotters' Club

Var að ljúka við hana þessa



og líkaði vel þegar ég komst á skrið en þessa dagana gefst lítill tími í lestur.  Í bókini er fjallað um nokkra vini í Birmingham í kringum 1970.  Þetta er þroskasaga nokkurra unglinga í menntaskóla.  Höfundur leyfir okkur að kynnast nokkuð mörgum persónum, mis náið, þannig að þú færð nokkur sjónarhorn á samaatburðinn.  Þetta er önnur bókin sem ég les eftir Jonathan Coe og ég held barasta að hann fari að verða einn af mínum uppáhaldshöfundum.  Nú verð ég barasta að drífa mig í að panta framhaldið The Closed Circle frá Amazon. Ekki leiðinlegt það.